Lectionary Calendar
Wednesday, December 25th, 2024
Christmas Day
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 62

1 Til söngstjórans. Fyrir Jedútún. Davíðssálmur. (62:2) Bíð róleg eftir Guði, sála mín, frá honum kemur hjálpræði mitt.2 (62:3) Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín - ég verð eigi valtur á fótum.3 (62:4) Hversu lengi ætlið þér að ryðjast allir saman gegn einum manni til að fella hann eins og hallan vegg, eins og hrynjandi múr?4 (62:5) Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans, þeir hafa yndi af lygi, þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu. [Sela]5 (62:6) Bíð róleg eftir Guði, sála mín, því að frá honum kemur von mín.6 (62:7) Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín - ég verð eigi valtur á fótum.7 (62:8) Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og hæli mitt hefi ég í Guði.

8 (62:9) Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum, Guð er vort hæli. [Sela]9 (62:10) Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn, á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman.10 (62:11) Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra muna, þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan gaum.11 (62:12) Eitt sinn hefir Guð talað, tvisvar hefi ég heyrt það: "Hjá Guði er styrkleikur."12 (62:13) Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn, því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile