Lectionary Calendar
Thursday, May 15th, 2025
the Fourth Week after Easter
Attention!
StudyLight.org has pledged to help build churches in Uganda. Help us with that pledge and support pastors in the heart of Africa.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 113

1 Halelúja. Þjónar Drottins, lofið, lofið nafn Drottins.2 Nafn Drottins sé blessað héðan í frá og að eilífu.3 Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað.4 Drottinn er hafinn yfir allar þjóðir og dýrð hans yfir himnana.5 Hver er sem Drottinn, Guð vor? Hann situr hátt6 og horfir djúpt á himni og á jörðu.7 Hann reisir lítilmagnann úr duftinu, lyftir snauðum upp úr saurnum8 og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum, hjá tignarmönnum þjóðar hans.9 Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa í næði sem glaða barnamóður. Halelúja.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile