Lectionary Calendar
Sunday, February 23rd, 2025
the Seventh Sunday after Epiphany
There are 56 days til Easter!
Attention!
Take your personal ministry to the Next Level by helping StudyLight build churches and supporting pastors in Uganda.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Jobsbók 35

1 Og Elíhú tók enn til máls og sagði:2 Hyggur þú það vera rétt, kallar þú það "réttlæti mitt fyrir Guði,"3 að þú spyr, hvað það stoði þig? "Hvaða gagn hefi ég af því, fremur en ef ég syndgaði?"4 Ég ætla að veita þér andsvör í móti og vinum þínum með þér.5 Horf þú á himininn og sjá, virtu fyrir þér skýin, sem eru hátt yfir þér.6 Syndgir þú, hvað getur þú gjört honum? Og séu afbrot þín mörg, hvaða skaða gjörir þú honum?7 Sért þú ráðvandur, hvað gefur þú honum, eða hvað þiggur hann af þinni hendi?8 Mann, eins og þig, varðar misgjörð þín og mannsins barn ráðvendni þín.

9 Menn æpa að sönnu undan hinni margvíslegu kúgan, kveina undan armlegg hinna voldugu,10 en enginn þeirra segir: "Hvar er Guð, skapari minn, sá er leiðir fram lofsöngva um nótt,11 sem fræðir oss meira en dýr merkurinnar og gjörir oss vitrari en fugla loftsins?"12 Þá æpa menn - en hann svarar ekki - undan drambsemi hinna vondu.13 Nei, hégómamál heyrir Guð eigi, og hinn Almáttki gefur því engan gaum,

14 hvað þá, er þú segir, að þú sjáir hann ekki. Málið er lagt fram fyrir hann, og þú átt að bíða eftir honum.15 En nú, af því að reiði hans hefir eigi refsað, á hann alls eigi að hafa vitað neitt um yfirsjónina!16 En Job opnar munninn til að mæla hégóma, heldur langar ræður í vanhyggju sinni.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile