Lectionary Calendar
Wednesday, December 25th, 2024
Christmas Day
Attention!
Take your personal ministry to the Next Level by helping StudyLight build churches and supporting pastors in Uganda.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 44

1 Til söngstjórans. Kóraítamaskíl. (44:2) Guð, með eyrum vorum höfum vér heyrt, feður vorir hafa sagt oss frá dáð þeirri, er þú drýgðir á dögum þeirra, frá því, er þú gjörðir forðum daga.2 (44:3) Þú stökktir burt þjóðum, en gróðursettir þá, þú lékst lýði harðlega, en útbreiddir þá.3 (44:4) Eigi unnu þeir landið með sverðum sínum, og eigi hjálpaði armleggur þeirra þeim, heldur hægri hönd þín og armleggur þinn og ljós auglitis þíns, því að þú hafðir þóknun á þeim.4 (44:5) Þú einn ert konungur minn, ó Guð, bjóð út hjálp Jakobsætt til handa.5 (44:6) Fyrir þína hjálp rekum vér fjandmenn vora undir, og fyrir þitt nafn troðum vér mótstöðumenn vora fótum.6 (44:7) Ég treysti eigi boga mínum, og sverð mitt veitir mér eigi sigur,7 (44:8) heldur veitir þú oss sigur yfir fjandmönnum vorum og lætur hatursmenn vora verða til skammar.8 (44:9) Af Guði hrósum vér oss ætíð og lofum nafn þitt að eilífu. [Sela]

9 (44:10) Og þó hefir þú útskúfað oss og látið oss verða til skammar og fer eigi út með hersveitum vorum.10 (44:11) Þú lætur oss hörfa undan fjandmönnum, og hatursmenn vorir taka herfang.11 (44:12) Þú selur oss fram sem fénað til slátrunar og tvístrar oss meðal þjóðanna.12 (44:13) Þú selur lýð þinn fyrir gjafverð, tekur ekkert verð fyrir hann.13 (44:14) Þú lætur oss verða til háðungar nágrönnum vorum, til spotts og athlægis þeim er búa umhverfis oss.14 (44:15) Þú gjörir oss að orðskvið meðal lýðanna, lætur þjóðirnar hrista höfuðið yfir oss.15 (44:16) Stöðuglega stendur smán mín mér fyrir sjónum, og skömm hylur auglit mitt,16 (44:17) af því ég verð að heyra spott og lastmæli og horfa á óvininn og hinn hefnigjarna.

17 (44:18) Allt þetta hefir mætt oss, og þó höfum vér eigi gleymt þér og eigi rofið sáttmála þinn.18 (44:19) Hjarta vort hefir eigi horfið frá þér né skref vor beygt út af vegi þínum,19 (44:20) en samt hefir þú kramið oss sundur á stað sjakalanna og hulið oss niðdimmu.20 (44:21) Ef vér hefðum gleymt nafni Guðs vors og fórnað höndum til útlendra guða,21 (44:22) mundi Guð eigi verða þess áskynja, hann sem þekkir leyndarmál hjartans?22 (44:23) En þín vegna erum vér stöðugt drepnir, erum metnir sem sláturfé.23 (44:24) Vakna! Hví sefur þú, Drottinn? Vakna, útskúfa oss eigi um aldur!24 (44:25) Hví hylur þú auglit þitt, gleymir eymd vorri og kúgun?25 (44:26) Sál vor er beygð í duftið, líkami vor loðir við jörðina.26 (44:27) Rís upp, veit oss lið og frelsa oss sakir miskunnar þinnar.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile