Lectionary Calendar
Thursday, May 15th, 2025
the Fourth Week after Easter
Attention!
Take your personal ministry to the Next Level by helping StudyLight build churches and supporting pastors in Uganda.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 126

1 Helgigönguljóð. Þegar Drottinn sneri við hag Síonar, þá var sem oss dreymdi.2 Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: "Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá."3 Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum glaðir.

4 Snú við hag vorum, Drottinn, eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.5 Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.6 Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile