Lectionary Calendar
Wednesday, December 25th, 2024
Christmas Day
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Jobsbók 4

1 Þá svaraði Elífas frá Teman og mælti:2 Munt þú taka því illa, þótt maður dirfist að yrða á þig? Og þó, hver fær orða bundist?3 Sjá, þú hefir áminnt marga, og magnþrota hendur hefir þú styrkt.4 Þann sem hrasaði, reistu orð þín á fætur, og hnígandi hnén gjörðir þú stöðug.5 En nú, þegar það kemur yfir þig, gefst þú upp, þegar það nær þér sjálfum, missir þú móðinn.6 Er ekki guðhræðsla þín athvarf þitt og þitt grandvara líferni von þín?

7 Hugsaðu þig um: Hver er sá, er farist hafi saklaus, og hvar hefir hinum réttvísu verið tortímt?8 Að því, er ég hefi séð: Þeir sem plægðu rangindi og sáðu óhamingju, þeir einir hafa uppskorið það.9 Fyrir andgusti Guðs fórust þeir, fyrir reiðiblæstri hans urðu þeir að engu.10 Öskur ljónsins og rödd óargadýrsins, - tennur ljónshvolpanna eru brotnar sundur.11 Ljónið ferst, af því að það vantar bráð, og hvolpar ljónynjunnar tvístrast.

12 En til mín laumaðist orð, og eyra mitt nam óminn af því -13 í heilabrotunum, sem nætursýnirnar valda, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina.14 Ótti kom yfir mig og hræðsla, svo að öll bein mín nötruðu.15 Og vindgustur straukst fram hjá andliti mínu, hárin risu á líkama mínum.16 Þarna stóð það - útlitið þekkti ég ekki -, einhver mynd fyrir augum mínum, ég heyrði ymjandi rödd:17 "Er maðurinn réttlátur fyrir Guði, nokkur mannkind hrein fyrir skapara sínum?18 Sjá, þjónum sínum treystir hann ekki, og hjá englum sínum finnur hann galla,19 hvað þá hjá þeim, sem búa í leirhúsum, þeim sem eiga rót sína að rekja til moldarinnar, sem marðir eru sundur sem mölur væri.20 Milli morguns og kvelds eru þeir molaðir sundur, án þess að menn gefi því gaum, tortímast þeir gjörsamlega.21 Tjaldstaginu er kippt upp, þeir deyja, og það í vanhyggju sinni."

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile