Lectionary Calendar
Wednesday, December 25th, 2024
Christmas Day
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Jobsbók 18

1 Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:2 Hversu lengi ætlið þér að halda áfram þessu orðaskaki? Látið yður segjast, og því næst skulum vér talast við.3 Hvers vegna erum vér metnir sem skepnur, orðnir heimskir í yðar augum?4 Þú, sem tætir sjálfan þig sundur í reiði þinni, - á jörðin þín vegna að fara í auðn og bjargið að færast úr stað sínum?

5 Ljós hins óguðlega slokknar, og logi elds hans skín ekki.6 Ljósið myrkvast í tjaldi hans, og það slokknar á lampanum yfir honum.7 Hans öflugu skref verða stutt, og ráðagjörð sjálfs hans steypir honum,8 því að hann rekst í netið með fætur sína, og hann gengur í möskvunum.9 Möskvi festist um hæl hans, lykkjan herðist að honum.10 Snaran liggur falin á jörðinni, og gildran liggur fyrir honum á stígnum.

11 Skelfingar hræða hann allt um kring og hrekja hann áfram, hvar sem hann gengur.12 Ógæfu hans tekur að svengja, og glötunin bíður búin eftir falli hans.13 Hún tærir húð hans, og frumburður dauðans etur limu hans.14 Hann er hrifinn burt úr tjaldi sínu, er hann treysti á, og það lætur hann ganga til konungs skelfinganna.15 Í tjaldi hans býr það, sem eigi er hans, brennisteini er stráð yfir bústað hans.16 Að neðan þorna rætur hans, að ofan visna greinar hans.17 Minning hans hverfur af jörðunni, og nafn hans er ekki nefnt á völlunum.18 Menn hrinda honum frá ljósinu út í myrkrið og reka hann burt af jarðríki.19 Hann mun hvorki eiga börn né buru meðal þjóðar sinnar, og enginn, sem undan hefir komist, er í híbýlum hans.20 Yfir skapadægri hans skelfast eftirkomendurnir, og hrylling grípur þá, er fyrr voru uppi.21 Já, svo fer um bústaði hins rangláta og svo um samastað þess manns, sem eigi þekkir Guð.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile