Lectionary Calendar
Wednesday, December 25th, 2024
Christmas Day
Christmas Day
advertisement
advertisement
advertisement
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!
Click here to learn more!
Read the Bible
Heilögum Biblíunni
Jeremía 45
1 Orðið sem Jeremía spámaður talaði til Barúks Neríasonar, þá er hann skrifaði þessi orð í bókina eftir forsögn Jeremía á fjórða ríkisári Jójakíms Jósíasonar, konungs í Júda:2 Svo segir Drottinn, Ísraels Guð, um þig, Barúk:3 Þú sagðir: "Vei mér, því að Drottinn bætir harmi við kvöl mína. Ég er þreyttur orðinn af andvörpum mínum, og hvíld finn ég enga!"4 Svo skalt þú til hans mæla: Svo segir Drottinn: Sjá, það sem ég hefi byggt, ríf ég niður, og það sem ég hefi gróðursett, uppræti ég.5 En þú ætlar þér mikinn hlut! Girnst það eigi! Því að sjá, ég leiði ógæfu yfir allt hold - segir Drottinn. En þér gef ég líf þitt að herfangi, hvert sem þú fer.