Lectionary Calendar
Tuesday, June 3rd, 2025
the Seventh Week after Easter
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Jesaja 20

1 Árið sem yfirhershöfðinginn kom til Asdód, sendur af Sargon Assýríukonungi, og herjaði á Asdód og vann hana, -2 í það mund talaði Drottinn fyrir munn Jesaja Amozsonar á þessa leið: Far og leys hærusekkinn af lendum þér og drag skó þína af fótum þér. Og hann gjörði svo og gekk fáklæddur og berfættur.3 Og Drottinn mælti: Eins og Jesaja þjónn minn hefir gengið fáklæddur og berfættur í þrjú ár sem tákn og fyrirburður um Egyptaland og Bláland,4 svo skal Assýríukonungur færa burt bandingjana frá Egyptalandi og útlagana frá Blálandi, bæði unga og gamla, fáklædda og berfætta, með bera bakhlutina, Egyptum til smánar.5 Þá munu þeir skelfast og skammast sín vegna Blálands, er þeir reiddu sig á, og Egyptalands, er þeir stærðu sig af.6 Og þeir, sem búa á þessari strönd, munu segja á þeim degi: "Svo er þá komið fyrir þeim, er vér reiddum oss á og flýðum til í von um hjálp til þess að frelsast undan Assýríukonungi! Hversu megum vér þá sjálfir komast undan?"

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile