Lectionary Calendar
Wednesday, December 25th, 2024
Christmas Day
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Esekíel 9

1 Þessu næst kallaði hann hárri röddu í eyru mín: "Refsingar borgarinnar nálgast!"2 Þá komu sex menn frá efra hliðinu, sem snýr í norður, og hafði hver þeirra eyðingarverkfæri í hendi sér, og meðal þeirra var einn maður, sem var líni klæddur og hafði skriffæri við síðu sér. Þeir komu og námu staðar hjá eiraltarinu.3 Dýrð Ísraels Guðs hafði hafið sig frá kerúbunum, þar sem hún hafði verið, yfir að þröskuldi hússins. Og hann kallaði á línklædda manninn, sem hafði skriffærin við síðu sér.4 Og Drottinn sagði við hann: "Gakk þú mitt í gegnum borgina, mitt í gegnum Jerúsalem, og set merki á enni þeirra manna, sem andvarpa og kveina yfir öllum þeim svívirðingum, sem framdar eru inni í henni."

5 En til hinna mælti hann að mér áheyrandi: "Farið á eftir honum um borgina og höggvið niður, lítið engan vægðarauga og sýnið enga meðaumkun.6 Öldunga og æskumenn, meyjar og börn og konur skuluð þér brytja niður, en engan mann skuluð þér snerta, sem merkið er á. Og takið fyrst til hjá helgidómi mínum!" Og þeir tóku fyrst til á öldungum þeim, sem voru fyrir framan musterið.7 Og hann sagði við þá: "Horfið ekki í að saurga musterið og fyllið strætin vegnum mönnum. Gangið nú út!" Þeir gengu þá út og hjuggu niður mannfólkið í borginni.8 Meðan þeir brytjuðu niður, féll ég fram á ásjónu mína, kallaði og sagði: "Æ, Drottinn Guð, ætlar þú að gjöreyða öllum eftirleifum Ísraels, þar sem þú eys út reiði þinni yfir Jerúsalem?"9 Þá sagði hann við mig: "Misgjörð Ísraelsmanna og Júdamanna er afskaplega mikil, og landið er fullt af blóðugu ranglæti og borgin er full af ofbeldisverkum, því að þeir segja: ,Drottinn hefir yfirgefið landið' og ,Drottinn sér það ekki.'10 Fyrir því skal ég heldur ekki líta þá vægðarauga og enga meðaumkun sýna. Ég læt athæfi þeirra þeim sjálfum í koll koma."11 Þá kom línklæddi maðurinn, sem hafði skriffærin við síðu sér, aftur og sagði: "Ég hefi gjört eins og þú bauðst mér."

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile