Lectionary Calendar
Wednesday, December 25th, 2024
Christmas Day
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Amos 1

1 Orð Amosar, sem var einn af fjárhirðunum í Tekóa, það er honum vitraðist um Ísrael á dögum Ússía Júdakonungs og á dögum Jeróbóams Jóassonar, Ísraelskonungs, tveimur árum fyrir jarðskjálftann.2 Hann sagði: Drottinn þrumar frá Síon og lætur raust sína gjalla frá Jerúsalem. Þá munu hagar hjarðmannanna drúpa og Karmeltindur skrælna.

3 Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Damaskusborgar vil ég eigi snúa aftur með það - af því að þeir þresktu Gíleað með þreskisleðum af járni,4 mun ég senda eld á hús Hasaels, og hann mun eyða höllum Benhadads.5 Ég mun brjóta slagbrand Damaskus og útrýma íbúunum úr Glæpadal og þeim, er ber veldissprotann, frá Yndishúsum, og Sýrlendingar skulu herleiddir verða til Kír, - segir Drottinn.6 Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Gasa vil ég eigi snúa aftur með það - af því að þeir herleiddu heil þorp til þess að selja í hendur Edómítum,7 mun ég senda eld gegn múr Gasa, og hann mun eyða höllum hennar.8 Ég mun útrýma íbúunum úr Asdód og þeim, er ber veldissprotann, frá Askalon og því næst snúa hendi minni gegn Ekron, til þess að þeir, sem eftir eru af Filistum, skuli undir lok líða, - segir Drottinn Guð.9 Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Týrusar vil ég eigi snúa aftur með það - af því að þeir seldu heil þorp í hendur Edómítum og minntust ekki bræðrasáttmálans,10 mun ég senda eld gegn múrum Týrusar, og hann mun eyða höllum hennar.11 Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Edómíta vil ég eigi snúa aftur með það - af því að þeir eltu bræðraþjóð sína með sverði og kæfðu alla meðaumkun, svo að hatur þeirra sundurreif endalaust og þeir geymdu stöðuglega heift sína,12 mun ég senda eld gegn Teman, og hann mun eyða höllum Bosra. 13 Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Ammóníta vil ég eigi snúa aftur með það - af því að þeir ristu á kvið þungaðar konurnar í Gíleað til þess að færa út landamerki sín,14 vil ég kveikja eld í múrum Rabba, og hann skal eyða höllum hennar, þegar æpt verður heróp á orustudeginum, þegar stormurinn geisar á degi fellibyljanna.15 Og konungur þeirra verður að fara í útlegð með hinum, hann og höfðingjar hans, - segir Drottinn.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile